Berglind og Markús

Brúðkaup 25. júní 2005

Monday, April 25, 2005

Nýtt plan

Jæja gott fólk, í góða veðrinu og pallasmíðinni um helgina var tekin sú ákvörðun að skella upp stóru partýtjaldi á pallinum og hafa veisluna þar. Þá geta nefnilega allir setið til borðs í sama rými og það finnst okkur miklu skemmtilegra.

Monday, April 18, 2005

Kjóllinn fundinn

Það er eins og kýrin Ljómalind sagði, "Aldrei segja aldrei Guttormur". Kjóllinn fannst þar sem ég var upphaflega ákveðin í að leita ekki einu sinni. Það er svona, stundum vill maður bara eitthvað allt annað en maður heldur.

Thursday, April 14, 2005

Boðskortin farin

Þá eru boðskortin farin í póst og má vonandi fara að búast við gestum hingað :) Við viljum endilega heyra frá ykkur sem fyrst hvort þið ætlið ekki örugglega að koma. Þið getið hringt í okkur, sent okkur póst eða látið í ykkur heyra í athugasemdum hérna á síðunni.