Berglind og Markús

Brúðkaup 25. júní 2005

Thursday, June 23, 2005

Tveir...

Það er allt að púslast saman, þökk sé fjölskyldum okkar með alla sína snilligáfu og dugnað. Tjaldið sannfærðist um að passa á pallinn og borðin samþykktu að víkja fyrir öðrum nettari. Sigga Lára tókst þú góða veðrið með þér til Akureyrar? Viltu þá vera svo væn að skila því, bara kannski upp úr hádegi á laugardag eða svo... ;-)

1 Comments:

Blogger Sigga Lára said...

Góða veðrið hefur svo sem eitthvað kíkt hérna, en samt ekki það mikið að það ætti neitt að fatla ykkur fyrir sunnan. En ég skal sko senda það. Við höfum ekkert með það að gera hér, allt of heitt í sýningarsölum og allir hálfsofandi á sviðunum. Kann alls ekki góðri lukku að stýra.

9:26 AM  

Post a Comment

<< Home