Berglind og Markús

Brúðkaup 25. júní 2005

Friday, June 24, 2005

Einn...

Og langur var hann, þessi síðasti dagur. Veit samt ekki alveg hvað ég var að gera, dágóður tími fór í snúninga, sækja meðal annars borð, stóla og borðbúnað. Einhver tími fór líka að láta gera við brotnu nöglina. Svo man ég að ég gekk í hringi nokkrum sinnum. Og fullt af góðu fólki hjálpaði mikið til. Árangurinn er líka ótrúlegur, glæsileg veisla tilbúin og bíður bara eftir ykkur, og mikið hlökkum við til! Nú er bara málið að halla sér, sofa vært á báðum grænu eyrunum sínum og vera hress og kátur í fyrramálið. Sjáumst á morgun!!!

1 Comments:

Blogger Svandís said...

Mikið vildi ég að ég hefði komist heim í tæka tíð svo ég gæti notið dagsins með ykkur. Ástarkveðjur og fullt af sólskini og góðu veðri handa ykkur. Megi dagurinn verða ykkur yndislegur.

Sakna ykkar,
Svandís

10:28 PM  

Post a Comment

<< Home