Berglind og Markús

Brúðkaup 25. júní 2005

Tuesday, May 24, 2005

Það er ekki eitt heldur allt

Ójá, það er heldur betur verið að gera fínt fyrir ykkur kæru brúðkaupsgestir. Ekki nóg með að þið fáið þennan fína risastóra pall, heldur er líka verið að ganga frá planinu svo það verði nú hægt að leggja nokkrum bílum og svo þið þurfið ekki að stikla í mölinni á háu hælunum. Nú þarf bara að fara að koma sér í þessi fínni smáatriði eins og skreytingar, skó og skartgripi. Og það stuðlar.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Andsk... ég sem var búinn að æfa mig þrotlaust að ganga á háu hælunum í möl. Verður ekki skilið eftir smávegis af möl fyrir þá sem vilja?

3:15 AM  
Blogger Berglind Rós said...

Jújú ekki málið, þú getur fengið að fara fjallabaksleiðina að pallinum yfir móa og grjót. Hlakka til! ;-)

3:50 AM  
Anonymous Anonymous said...

Úff sem betur fer á ég ekki mikið af háum hælum :) Annars boða ég komu okkar Ara Páls, reynum að finna pössun fyrir guttana.
Hlakka rosa til að vera með ykkur á þessum frábæra degi! Bestu kveðjur Lilja

1:09 PM  

Post a Comment

<< Home